18. október 2007 klukkan 23:08
OK
Ég er hér með
hætt að blogga!
Takk fyrir lesturinn undanfarið ár
<3
Ingunn R.
12. október 2007 klukkan 17:19

Áhrifarík "mynd" úr MoMA safninu.
{Museum of Modern Art}
Anywho.
Kannski ég taki mér tíma í að..
Reyna að lífa þessa síðu við.
Til að hafa eitthvað að gera svona í byrjun helgar.
Látum okkur sjá.
Ég átti afmæli síðastliðin miðvikudag.
Sumsé þann 10.október.
Einstaklega einmannalegur dagur.
Aldrei átt jafn einmannalegan afmælisdag dag.
Dísa bauð mér samt á Big Papas í hádeginu :D
En annars mun ég ekkert halda uppá afmælið.
Fékk að ákveða hvað væri í matinn.
Fjölskyldan borðaði saman og ég fékk köku.
Búin að fá 4 afmælisgjafir.
Lítið mjótt/flatt asjónvarp í herbergið mitt frá Ma og Pa.
God of War II frá litla bró [snilldar leikur þar á ferð,sjiiitt].
10.þús. frá Imbu ömmu.
og síðast en ekki síst fékk ég þyrluflug í NYC frá Röggu frænku.
Ásamt lítilli gjöf á sjálfan afmælisdaginn.
Mhm, yndæl lítil fjölskylda sem ég á :D
Staffa djamm helgina áður.
Þvílíkt klúður sem það var.
Stakk af með Möggu á rúntinn.
Drekka og rúnta, jeij.
Kvöldið eftir fór ég í mat til Agnesar.
Partý svo eftir það, fínt fjör þar :)
Mig langar í bíó.
En ég hef engan til að fara með :(
Iss..
Ingunn R.
25. september 2007 klukkan 22:06
Ég er í vettlingum
Svona fingurvettlingum
Mér finnst ofsa gaman að skrifa í vettlingum.
Þeir eru hvítir og vínrauðir
Þeir eru líka svona röndóttir
Þeir eru annað hvort hvítir með vínrauðum röndum.
Eða vínrauðir með hvítum röndum.
En ég held að þeir séu hvítir með vínrauðum röndum.
Hvarf í smá child like state.
It keeps me sane once in a while.

Nóg um það.
Ég ætla mér að detta inní bloggheimin í agnarstund.
Ég skrapp til New York í fáeina daga.
Hreinasta snilld þar á ferð.
En áður en ég fór út fæddi Erlan mín LOKSIN!
Það var lítill guttalingur eins og ég kýs að kalla hann.
Gutti það er að segja.
Vil bara óska henni til hamingju með hann! :*
Verð að heimsækja ykkur brátt! =)
Skólinn er bara eins og skólinn er alltaf.
Ég er búin að vera hálf sofandi síðan ég byrjaði.
Á mjööööög erfitt að vakna svona snemma.
Plús mér hefur ekkert liðið sérlega vel hérna á þessu blessaða landi og í þessum blessaða skóla síðan ég kom heim frá Marmaris og aftur frá New York.
En ég þarf að fara að koma mér í gang.
Brumm Brumm.
Veistu.
Ég nenni þessu ekki lengur.
Písát!
Ingunn R.
09. september 2007 klukkan 18:52
ÉG ER SVO SPENNT!!!!
AAAH!
Fokk.
Ég ætla hingað upp.

Ingunn R.
28. ágúst 2007 klukkan 16:12
Verið blessuð og sæl.
Þá er maður kominn á klakann.
Mér til mikilla kæti, eða þannig.
Skólinn, kuldinn og vinnan. Spennandi?
Held nú ekki. Væri alveg til í að vera með öðruvísi áhyggjur á öðrum stað.
En það er ekki alveg í boði :)
Marmaris var frábær, á köflum :P
Við stelpurnar kynntumst fullt af frábærlega skemmtilegu fólki.
Þó svo tyrkir geta verið fremur dramatískir, þá geta þeir verið ágætir ;)
Ég var fremur ódugleg að taka myndir.
Ég keypti mér heldur eiginlega ekkert.
Á alveg fullt af minningum samt sem áður :)
Var frekar stillt sko..
Eða það fer bara eftir hvað þú flokkar undir sem 'skandall'.. ;P
Ætla nú ekki að skrifa mikið meir.
Hendist vonandi bráðlega til New York í fáeina daga.
Loksins.! ;)
Kv.Ingunn.

Smá froskaklám í endan.
Ingunn R.
04. ágúst 2007 klukkan 13:10
Góðan daginn.
Ég hef ákveðið að skrifa smá blogg svona, áður en við höldum til Tyrklands.
Get ekki sagt að það sé mikið að frétta af mér.
Ég er búin að vera ágætlega upptekin með að vinna og svona.
Fór í bústað með fjölskyldunni síðasta föstudag, mjög fínt það.
Núna er ég bara að vinna eins og brjálaðingur fram á miðvikudag.
Fer föstudaginn í sömu viku. YEAH.
Frekar fúlt samt að vera að vinna svona mikið.
Var ein í allan gærdag. *æl*
Það er samt eitt fínt við þessa vinnu.
Sumt fólk sem maður afgreiðir, hah!
Og gaman þegar fólk birtist sem maður hefur ekki hitt í fokking langan tíma.
Fólk sem er geðveikt næs og ég er alveg komin með allavega tvo uppáhalds viðskiptavini.
Svo mikið af fólki sem mætir regluega :D
Einnig koma mikið af útlendingum líka.
Eins og munnkarnir t.d.
Mér finnst bara furðulegt að þeim sé ekki kalt í þessum umvafningi sem þeir eru alltaf í.
Þetta er Ísland. hehe.
Samt, mikið heitt undanfarið.
Svo lenti ég í einu um daginn. Tveir útlendingar komu að versla. Þeir voru voða vingjarnlegir, reyndu að spjalla við mig og svo framvegis. Einn segir nafnið mitt, hann kynnir sig og segir þjóðernið sitt. Þegar ég er búinn að afgreiða hann og ætla að fara frá kassa þá kemur hann og gefur mér nammi sem hann keypti, tók í höndina á mér og sagði að þetta væri frá þeim báðum og brosti útað eyrum! Ég tók við því með brosi, roðnaði og sagði "Takk". Hah. Fór geðveikt hjámér.
En kannski nóg komið af blaðri um vinnuna.
Auðna ást átti afmæli þann 30.júlí :*
Svo Sindri daginn eftir! hehe.
Þetta er búið að vera mjög fínt sumar.
Búin að eignast nokkra nýja vini og bonda við suma ;), gengur vel í vinnunni, heitt sumar, búin að hitta og umgangast vinina meir en önnur sumur, feimnin hefur minnkaði til muna og mér líður bara fjandi vel!
Pínu stress fyrir þessa ferð samt.
Mamma birtist áðan með okkar huge ferðatösku "Á ég ekki að setja hana inn til þín! Þarft að fara að byrja að pakka!" Hah, fokk.
En við stelpurnar ætlum að vera duglegar að upplifa sem flest ;) Það er kannski það aðalega sem mér hlakkar til. Og að djamma mega mikið of course!
Segjum þetta gott í dag.
Efa að ég nenni að blogga aftur þannig.
Sjáumst hress og kát í MK ;)
- annars bara sjáumst :D

Ingunn R.
25. júlí 2007 klukkan 19:43
Langaði bara að tjá mig hvað mig þykir vænt um þetta litla gerpi..!

Ingunn R.
15. júlí 2007 klukkan 14:32
You Need An Ingunn.
Do The Ingunn.
Is Ingunn In You?
Ingunn Keeps Going and Going.
No Ingunn, No Comment.
Ingunn. It's What's For Dinner.
It's That Ingunn Feeling.
Daddy or Ingunn?
I Like the Ingunn in You.
Come to Life. Come to Ingunn.
The Science Of Ingunn.
There's no Wrong Way to Eat an Ingunn. [hahaha.]
Ingunn Saves Your Soul.
Nothing Comes Between Me And My Ingunn.
There's More Than One Way To Eat An Ingunn.
Fall Into The Ingunn.
You Can't Top an Ingunn.
The Best Ingunn A Man Can Get.
Anytime, Anyplace, Ingunn.
Get Busy With The Ingunn.
It's Not TV. It's Ingunn.
Ingunn - It Looks Good On You.
I Feel Like Ingunn Tonight.
It Takes A Though Man To Make A Tender Ingunn.
For That Deep Down Body Ingunn.
Got An Ingunn? Your In Luck.
The Worlds Favorite Ingunn.
Ingunn, The Other White Meat.
Tonight, Let It Be Ingunn.
Jíha.
Ingunn R.
07. júlí 2007 klukkan 02:03
Ingunn R.
24. júní 2007 klukkan 16:55
Það er víst þannig með mig.
Það er allt, eða ekkert.. =/
Ekki það að ég vilji það eitthvað þannig.
En þannig hefur heimurinn/örlögin ákveðið að fara með mig.
Húrra fyrir því.
"Hæ, ég heiti Ingunn, ég er asni, ég er bitur og illt í rassinum."
Allavega.
Ýkt fun helgi, án efa..!
Er núna alveg búin.
Án djóks.
Gat ekkert sofið í "nótt".
Lagðist samt fram uppí sófa, og steinsofnaði þar..!
Róandi að hlusta á teiknimyndahljóð, gerist ekki meir afslappaðra en það.
Að vanda nenni ég ekki að tala um helgina.
Leiðinlegt upptal á hvað ég gerði.
Myndir frá laugadeginum eru hér til hliðar,
þær segja kannski eitthvað =)
En annars bara had to be there.
Svona er að umgangast hana Ingunni ekki. ha. ha. =P
Fæ alltaf svona sterka þörf til að tjá mig.
Sem er nú ekkert nýtt.
Ég er bara búin að gleyma því öllu.
Stutt eftir að hinni vinnunni minni! Yeah!
Svo ætlum ég og Unnur að skella okkur í Riverrafting með vinnunni ;D
Held að það sé klárlega málið.
Enda ýkt góður díll og riverrafting er geggjað fun!
Ég er endanlega búin með ökuskólan.
Þarf að taka prófið í júlí því ég er blönk =(
Það er svo LANGT síðan ég hef verið blönk, ekki gaman.. -.-
En ég bjargaði fjölskyldu bílnum.. get huggað mig við það.
Ætla að enda þetta heilalausa bull.. núna!Með yndislega mynd af móður minni.
Þarna er svarið við afhverju ég er eins og ég er.. ;D
Ingunn R.